Það er okkur hjá Þörungaverksmiðjunni mikið ánægjuefni að tilkynna að við Þörungaverksmiðjan hefur fengið forvarnarverðlaun VÍS árið 2010 og titilinn Fyrirmyndarfyrirtæki á sviði forvarna. Viðurkenning sem þessi er raunveruleg hvatning á störfum og áherslum okkar er varðar öryggi verksmiðjunnar og starfsmanna hennar.
Með forvarnarverðlaununum fylgdu eftirfarandi orð frá VÍS:
"Fyrirtækið er vel merkt fyrir áhættum og flóttaleiðum og eins eru starfsmenn vel meðvitaðir um þá vinnu sem unnin er að hálfu yfirmanna varðandi forvarnir. Allt sem [snýr] að lögum og reglugerðum [er] í mjög góðu lagi. Það sama má segja um innbrotsvarnir, brunavarnir og ekki síst þá þætti sem snúa að umgengni í verksmiðjunni. Við öllum spurningum okkar voru veitt greið og örugg svör og á endanum vorum við þess fullviss að þarna væri fyrirtæki með fyrirmyndar forvarnir, forvarnir sem byggðar eru á glöggu innsæi forráðamanna og ekki síður áhuga starfsmanna."
Fyrir hönd Þörungaverksmiðjunnar og starfsmanna hennar þakka ég VÍS kærlega fyrir heiðurinn.
Atli Georg Árnason, framkvæmdastjóri
Þörungaverksmiðjan hf. tók þátt í að gefa viðurkenningar Fjölbrautaskóla Vesturlands við útskrift skólans nú í lok desember. Var það sannur heiður fyrir okkur í verksmiðjunni að fá að taka þátt í viðurkenningunum þar sem að einn af sumarstarfsmönnum okkar, Kristján Gauti Karlsson, hlaut verðlaun fyrir afburðar námsárangur ásamt öðrum íbúa okkar ágæta samfélags, Ásbjörns Egilssonar, er hlaut einning verðlaun fyrir afburðar námsárangur. Ásbjörn tengist Þörungaverksmiðjunni HF. mjög svo þar sem að hann starfar sem þangsláttumaður hjá okkur á sumrin. Erum við hjá Þörungaverksmiðjunni HF. afar stolt af árangri Kristjás Gauta og Ásbjörns og viljum við með þessu óska þeim og fjölskyldum þeirra hjartanlega til hamingju með árangurinn.
Hin árlega hangikjötveisla Þörungaverksmiðjunnar var haldinn í dag, þar sem starfsmönnum var boðið upp á hangikjöt í kaffistofunni. Einnig voru þeim færðar jólagjafir frá verksmiðjunni og með þessu vill Þörungaverksmiðjan óska öllum starfsmönnum sínum gleðilegra jóla með þökk um samstarfið á árinu sem er að líða.
Uppskeruhátíð / Jólahlaðborð þangvertíðar Þörungaverksmiðjunnar HF. var haldin laugardaginn 5. desember sl. og var starfsmönnum verksmiðjunnar ásamt öðrum velunnurum hennar boðið til veislu á Café Riis á Hólmavík við góðar undirtektir. Fögnuðu viðstaddir met þangslætti síðustu þangvertíðar sem var formlega slitið með skemmtuninni og með þessu vill Þörungaverksmiðjan HF. þakka starfsmönnum og öðrum velunnurum sínum fyrir góða þangvertíð.
Þörungaverksmiðjan hf. hefur ákveðið að styrkja Vinafélag Grettislaugar með beinu fjárframlagi til byggingar buslulaugar við sundlaug Reykhólahrepps þar sem að um mjög vert góðgerðarframtak er að ræða fyrir nærsamfélag okkar hér á Reykhólum.
Nánari upplýsingar um Grettislaug sundlaug Reykhólahrepps má finna á vefsíðu Reykhóla.
Samningar hafa náðst á milli Þörungaverksmiðjunnar hf. og skipasmíðastöðvar Þorgeirs & Ellerts á Akranesi er varðar endurbyggingu og breytingum á nýja skipi Þörungaverksmiðjunnar, Fossá ÞH362, að þeirra sérstöku þörfum. Binda aðilar verkefnisins og aðrir velunnarar miklar vonir við verkið þar sem að því loknu mun skipið verða að hinni nýju Karlsey og leysa hina gömlu af hólmi. Ekki hefur ennþá verið tekin lokaákvörðun um hvað hlutverk fyrirtækið mun finna fyrir gömlu Karlsey þegar þjónustu hennar lýkur.
Þörungaverksmiðjan hf. hefur ákveðið að styrkja öflugt góðgerðarstarf Ólafsdalsfélagsins ses. með því að leggja því til 100kg af Hrossaþaramjöli LAM5025 fyrir matjurtargarð félagsins.
Nánari upplýsingar um Ólafsdalsfélagið má finna á vefsíðu þeirra: www.olafsdalur.is
Gylfi Helgason hefur látið af störfum sem skipstjóri á m/b Karlsey hjá Þörungaverksmiðjunni 30. október vegna aldurs eftir 35. ára farsælt starf fyrir verksmiðjuna. Vilja starfsmenn og stjórn Þörungaverksmiðjunnar hf. þakka Gylfa samstarfið og óska honum velfarnaðar á nýjum vetfangi í lífinu.
Þörungaverksmiðjan HF. á Reykhólum hefur fest kaup á nýju skipi Fossá ÞH362 til að taka við hlutverki núverandi skipi þeirra Karlsey 1400. Fossá ÞH362 var tekin í notkun 2003 eftir að hafist var handa við að byggja skipið í Kína um aldarmótin síðustu, má því segja að skipið sé tiltölulega nýtt af nálinni. Margvísleg tækifæri opnast fyrir verksmiðjuna með kaupunum á nýja skipinu í kjölfar breyttra aðstæðna í rekstrarumhverfi fyrirtækisins.
Karlsey 1400 verður áfram í rekstri á meðan verksmiðjan breytir Fossá ÞH362 að sínum sérstöku þörfum, að því loknu mun skipið verða að hinni nýju Karlsey og leysa hina gömlu af hólmi. Ekki hefur ennþá verið tekin lokaákvörðun um hvað hlutverk fyrirtækið mun finna fyrir gömlu Karlsey þegar þjónustu hennar líkur. Nokkrar hugmyndir er á borðinu en það er of snemmt að fara nákvæmlega ofan í saumana á þeim hverjar þær eru eins og staðan er núna.
Með Fossánni fær Þörugaverksmiðjan HF. skip sem getur aukið afkastagetu verksmiðjunnar. Til að þetta verði að veruleika verður margt að ganaga upp sem ekki er á borði Þörungaverksmiðjunnar. Endurbætur við hafnarmannvirki Reykhólahrepps sem er á siglingamálaáætlun 2007 til 2010 er lykilatriði, þar sem að þær áætlanir gera ráð fyrir byggingu varnargarðs við höfnina. Einning þarf að huga að fjölgun íbúða á svæðinu þar sem mikill skortur er á íbúðahúsnæði fyrir mögulega starfsmenn fyrirtækisins.
Miðuppskeruhátíð þangvertíðar Þörungaverksmiðjunnar HF. var haldin föstudaginn 25. september sl. og var starfsmönnum verksmiðjunnar ásamt öðrum velunnurum hennar boðið til veislu þar sem að framkvæmdastjóri og verkstæðisformaður grilluðu lambakjöt fyrir gesti og gangandi.
Fögnuðu viðstaddir starfsafmæli fimm lykilstarfsmanna hjá Þörungaverksmiðjunnar HF. og var þeim veitt viðurkenning fyrir tryggð og farsælt samstaarf í gegnum árin í tilefni tímamóta þeirra hjá fyrirtækinu. Allir hafa starfsmennirnir unnið í meir en 20 ár hjá fyrirtækinu og eru þeir eftirfarandi:
Með þessu vill Þörungaverksmiðjan HF. þakka starfsmönnum sínum fyrir tryggð og farsælt samstarf.
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar HF., enskt hjáheiti „Thorverk“, boðar hér með til aðalfundar félagsins er haldinn verður í fundarsal Þörungaverksmiðunnar á Reykhólum miðvikudaginn 3. júní nk. kl. 1300.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar HF.
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar hf. (enskt hjáheiti „Thorverk“) á Reykhólum boðar hér með til aukafundar félagsins er haldinn verður í einu af fundarherbergjum Hótel Reykjavík Centrum, Aðalstræti 16, 110 Reykjavík, þriðjudaginn 13. janúar 2009 klukkan 12:00.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi í samræmi við IV. lið samþykkta félagsins:
Kær kveðja,
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar hf. “Thorverk”
Hin árlega hangikjötveisla Þörungaverksmiðjunnar var haldinn í dag, þar sem starfsmönnum var boðið upp á hangikjöt í kaffistofunni. Einnig voru þeim færðar jólagjafir í samvinnu við starfsmannafélagið ásamt því að dregið var úr í hinu árlega jólahappdrætti starfsmannafélagsins og verksmiðunnar. Með þessu vill Þörungaverksmiðjan óska öllum starfsmönnum sínum gleðilegra jóla með þökk um samstarfið á árinu sem er að líða.
Atli Georg Árnason rekstrarfræðingur kom um síðustu mánaðamót til starfa sem framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum. Hann tekur við af Halldóri Ó. Sigurðssyni, sem gegndi starfinu í tæp sex ár. Halldór var í sumar ráðinn framkvæmdastjóri Bauhaus á Íslandi og fluttist í framhaldi af því suður ásamt fjölskyldu sinni.
Atli Georg er 34 ára að aldri, Suðurnesjamaður að uppruna en hefur verið búsettur ásamt fjölskyldu sinni í Aberdeen í Skotlandi mörg undanfarin ár. Eiginkona hans er Jóhanna Björg Guðmundsdóttir, tanntæknir frá Háskóla Íslands. Þau eiga þrjú börn, Guðrúnu Áslu, níu ára, Maríu Rún, fimm ára, og Atla Jóhann, hálfs annars árs.
Á árunum 2001 til 2004 var Atli við nám við Robert Gordon University í Aberdeen og lauk þaðan MBA-prófi með áherslu á breytinga- og verkefnastjórnun. Jafnframt námi stofnaði hann árið 2003 flugfélagið City Star Airlines í Aberdeen og kom því á legg og varð þar með einn yngsti frumkvöðull í flugrekstri í heiminum. Hann lauk atvinnuflugmannsprófi ungur að aldri.
Atli hefur sótt námskeið af ýmsu tagi hér á landi og erlendis. Má þar nefna námskeið er tengjast þeim viðskiptagreinum sem hann hefur starfað við, stjórnun fyrirtækja og ýmsum flugtengdum málefnum. Hann hefur tekið þátt í ýmsum viðskiptaverkefnum á Íslandi og erlendis á liðnum árum, svo sem stofnun, yfirtöku, kaupum, samruna og daglegri stjórnun fyrirtækja.
Á síðasta vetri hlaut Atli MUniv heiðursgráðu frá Robert Gordon University og var á sama tíma tilnefndur til verðlauna í Skotlandi. Annars vegar sem Stjórnandi ársins 2007 hjá Institute of Directors Scotland og hins vegar sem Upprennandi stjórnandi ársins og Stjórnandi ársins í Aberdeen og Grampian-héraði.
Atli Georg Árnason er fæddur 27. mars 1974 í Grindavík. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 1994 og starfaði síðan m.a. sem flugafgreiðslumaður og bílasali og sölumaður á fasteignasölu uns hann fluttist til Skotlands árið 2001. Á skólaárum á unglingsaldri vann hann ýmis störf, svo sem við búskap, fiskeldi, fiskvinnslu og netagerð.
Atli er áhugamaður um allar íþróttir. Hann lék m.a. körfuknattleik með meistaraflokki Njarðvíkur og Grindavíkur og með drengja- og unglingalandsliði Íslands. Núna sinnir hann einkum líkamsrækt og menningu í frístundum, fyrir utan þann tíma sem hann ver með fjölskyldu sinni.
Búið er að gera mikið fyrir verksmiðjuna á síðasta ári og ekki er verið að fara slá slöku við. Nýr blautendi var settur upp í nóvember, sem auðveldar efninu að komast inn í verksmiðjuna og eykur afkastagetuna. Keypt var pökkunarbúnaður, sem á eftir að setja upp, en fyrst verður að stækka verksmiðjuna til þess að koma henni fyrir. Hefjast framkvæmdir snemma árs.
P & H krani 230 til sölu. Árgerð 1999.
Nú er að koma að því að Þörungaverksmiðjan fái kalt vatn. Ekkert kalt vatn hefur verið í verksmiðjunni síðan hún var stofnuð árið 1975. Aðeins hefur verið heitt hverarvatn sem er 116°C í hvernum. Byrjað var að leggja kaldavatnslögn á síðasta ári og er leiðslan komin að Þörungaverksmiðjunni en ekki inn í hús.
Við óskum öllum landsmönnum og viðskiptavinum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir árið sem er að líða.
Þörungaverksmiðjan óskar öllum starfsmönnum sínum og viðskiptavinum gleðilegra jóla með þökk um samstarfið og viðskiptin á árinu sem er að líða.
Þörungaverksmiðjan bauð starfsmönnum sínum í hangikjötsveislu í kaffistofu Þörungaverksmiðjunnar.
25.nóvember 2005 fóru starfsmenn Þörungaverksmiðjunnar á Brodway. Byrjað var á því að fara á jólahlaðborð og svo var frábær sýning sem heitir ,,Sagan af Nínu og Geira“ lög eftir Björgvin Halldórsson. Björgvin söng sjálfur nokkur lög, en annars voru í aðalhlutverki, Heiða úr Idol, Regína Ósk, Steinn Ármann og Friðrik. Eftir þessa frábæru sýningu var ball með hljómsveitinni Á móti sól, sem spilaði fram eftir nóttu.
Þörungaverksmiðjan fékk afhenda vottun fyrir lífræna framleiðslu fyrir árið 2006. Þ.e. Þörungaverksmiðjan uppfyllir ströngustu kröfur um alþjóðlega framleiðslu 7 árið í röð.
Þörungaverksmiðjan styrkti Unglingadeild björgunarsveitarinnar Heimamenn til kaupa á nýjum úlpum.
Þörungaverksmiðjan bauð starfsmönnum sínum í grillveislu til að fagna komu á nýjum krana. Framkvæmdarstjórinn og verksmiðjustórinn grilluðu fyrir fólkið eðal lambakjöt.
Þörungaverksmiðjan styrkti ungmannafélagið UDN til kaupa á íþróttafötum.
Halldór Óskar Sigurðsson hefur verið ráðinn í stöðu framkvæmdastjóra Þörungaverksmiðjunnar. Halldór er með BS gráðu í stjórnun og meistarapróf MBA í alþjóðlegri stjórnun. Síðast starfaði Halldór sem markaðsstjóri hjá Hyundai Electronics í Danmörku. Starfsmenn Þörungaverksmiðjunnar vilja bjóða Halldór velkominn til Reykhóla og til starfa.
Halldór Halldórsson hefur verið ráðinn sem fjármálastjóri Póls hf. Samstarfsfólk Halldórs hjá Þörungaverksmiðjunni vill þakka honum fyrir gott og árangursríkt samstarf og óska honum góðs gengis í nýju starfi.
Eignarhlutur Monsanto í Kelco og þ.m.t. Þörungaverksmiðjunni hefur verið seldur til International Specialty Products (ISP).
Eigendaskiptin áttu sér stað þann 15. okt. 1999. Kelco kaupir stóran hluta af framleiðslu Þörungaverksmiðjunnar til alginatframleiðslu. Stjórn Þörungaverksmiðjunnar hefur jákvæðar væntingar með áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar í kjölfar eigendaskipta.
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar veitti viðtöku 14. júní í Bjarkarlundi viðurkenningu um að starfsemin sé lífrænt vottuð.
Það er Vottunarstofan Tún ehf. sem vottar framleiðslu Þörungaverksmiðjunnar hf. Vottunarstofan Tún er jafnframt eftirlitsaðili fyrir bandarísku vottunarstofuna Quality Assurance International (QAI) sem mun heimila Þörungaverksmiðjunni að nota vörumerki sitt. Vörumerki QAI er vel þekkt í Bandaríkjunum og víða um heim. Framvegis verða afurðir Þörungaverksmiðjunnar merktar lífrænar með vörumerkjum Túns og QAI.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur sjávargróður og afurðir hans hljóta vottun sem lífræn framleiðsla. Vottun Þörungaverksmiðjunnar er staðfesting þess að fyrirtækið uppfylli ströngustu alþjóðlegar kröfur um sjálfbæra nýtingu auðlinda, aðgreiningu hráefna, rekjanleika afurða og varnir gegn mengun á öllum stigum framleðslunnar. Við búum vel að náttúruauðæfum Breðafjarðar og 25 ára reynsla okkar á öflun sjávargróðurs ásamt rannsóknarvinnu vísindamanna gerir okkur kleyft að afla þangs og þara í ómenguðu umhverfi, án þess að ganga á þær auðlindir sem svæðið býr yfir.
Þörungaverksmiðjan hefur orðið vör við auknar þarfir viðskiptavina sinna fyrir lífrænt vottuðu þörungamjöli og ákvað þess vegna að aðlaga sína vinnslu til að fullnægja kröfum sem gerðar eru til lífrænnar framleðslu. Eftirspurn á lífrænum afurðum er að aukast í samræmi vð vaxandi þekkingu á áhrifum tilbúinna efna og áhuga almennings fyrir umhverfi sínu og heilbrigðari lífsháttum. Framleðendur lífrænna matvara hafa hingað til haft takmarkað val á góðum lífrænum áburði og fóðri og því er sýnt að eftirspurn mun fara vaxandi fyrir lífrænar afurðir á komandi árum.
Vottun Þörungaverksmiðjunnar verður fyrirtækinu mikilvægt vopn í harðnandi samkeppni á þeim mörkuðum sem fyrirtækð keppir og mun vonandi opna dyr að fleiri og verðmætari mörkuðum. Kostir íslenska þörungamjölsins eru margir og mikils metnir. Um það vitna jákvæðar umsagnir ánægðra íslenskra og erlendra vðskiptavina. Vottunin staðfestir gæði þeirra aðferða sem notaðar eru vð framleiðsluna.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur sjávargróður og afurðir hans hljóta vottun sem lífræn framleiðsla. Vottun Þörungaverksmiðjunnar er staðfesting þess að fyrirtækið uppfylli ströngustu alþjóðlegar kröfur um sjálfbæra nýtingu auðlinda, aðgreiningu hráefna, rekjanleika afurða og varnir gegn mengun á öllum stigum framleðslunnar.
Bill Wolf, June 1999
[Þörungaverksmiðjan] hefur lengi verið þekkt sem sérstaklega mikilvægur framleiðandi á hágæða mjöli.
Richard Searle, July 2004
Hönnun: Hringbrot