Í dag hefur nýr framkvæmdarstjóri, Einar Sveinn Ólafsson störf í Þörungaverksmiðjunni. Við bjóðum hann velkominn til starfa.
Grettir BA 39, hið nýja flutningaskip Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum, fór í morgun í sína fyrstu ferð að sækja þang og kom aftur til hafnar síðdegis. Tveir prammar eru farnir til þangsláttar og tveir aðrir fara í vikunni. Tíðarfar hefur verið óhagstætt og sláttutíminn byrjar óvenju seint að þessu sinni. Grettir fór inn í Kvígindisfjörð að sækja þangið og kom með 66 netpoka eða líklega nær 220 tonn. Nánari upplýsingar um upphaf þangvertíðar má finna á vef Reykhólahrepps.
Samninganefnd starfsmanna Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum náði á áttunda tímanum í gærkvöldi að lenda kjaraviðræðum við SA og fulltrúa eigenda Þörungaverksmiðjunnar með endurnýjun kjarasamnings til þriggja ára. Kynningafundur um samninginn verður í matsal Þörungaverksmiðjunnar þann 15.júní næstkomandi kl.12.00 og verður kjörfundur að lokinni kynningu. Nánari upplýsingar um samninginn má finna á vefsíðu VERKVEST.
Þörungaverskmiðjan fékk að njóta þess heiðurs að taka þátt í að gefa nemanda Fjölbrautarskóla Vesturlands verðlaun við útskrift stúdenta vorið 2011. Nemandinn sem fékk viðurkenningu frá Þörungaverksmiðjunni HF. fyrir ágætan árangur í ensku á stúdentsprófi á vorönn 2011 heitir Guðlaug G. I. Bergsveinsdóttir. Hægt er að lesa meira um þetta á vef FVA.
Við léttan hádegisverð í gær í boði Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum í tilefni af komu nýja þang- og þaraflutningaskipsins Grettis, þar sem boðið var ótakmarkað vinum og velunnurum fyrirtækisins, var afhent viðurkenningarskjal vegna nafngiftarinnar á skipinu. Eins og áður hefur verið greint frá varð tillaga systranna Aðalbjargar og Elínborgar Egilsdætra á Mávavatni við Reykhóla fyrir vali dómnefndar. Nánari upplýsingar um verðlaunin má finna á vef Reykhólahrepps.
Forsvarsmenn Þörungaverksmiðjunnar og íbúar á Reykhólum höfðu ástæðu til að fagna sl. sunnudagskvöld þegar Grettir BA39 nýtt þangöflunar- og þaraskurðarskip verksmiðjunnar lagðist fánum prýddur að bryggju í heimahöfn á Reykhólum í á sunnudagskvöld. Þar með var settur endapunkturinn á endursmíði Fossá ÞH362 frá kúfiskveiðiskipi yfir í Gretti BA39 þangflutninga- og þarakurðarskip sem mun leysa Karlseyna gömlu af hólmi sem þjónað hefur vel og mjög lengi.
Atli Georg Árnason, framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar hf. á Reykhólum, var að vonum glaðbeittur við komu skipsins og færði áhöfninni tertu.
„Verksmiðjan stendur á merkum tímamótum með komu okkar glæsilega skips sem nú leysir núverandi skip af hólmi“, sagði Atli Georg. „Verksmiðjunni hefur vegnað einstaklega vel undanfarin rekstrarár vegna framleiðsluaukningar, sem þakka má okkar góða starfsfólki. Vegna síaukinnar eftirspurnar eftir okkar lífrænt vottaða hráefni opnar nýja skipið enn meiri möguleika á aukinni hráefnisöflun og í kjölfarið aukinni framleiðslugetu, þar sem væntingar eru að skipið geti tvöfaldað afkastagetu okkar núverandi skips.“
Örn Snævar skipstjóri sagði að ferðin til Reykhóla frá Akureyri hafi gengið ljómandi vel. „Veðrið var þokkalegt megnið af leiðinni“, segir hann. „Við vorum aðeins lengur á leiðinni en gert var ráð fyrir. Yst í Eyjafirðinum fengum við norðankalda. Frá Straumnesi og suður fyrir Djúp fengum við mótstraum. Svo fengum við reyndar meðstraum frá Blakk og suður fyrir Látrabjarg.“
Örn Snævar segir að skipið hafi reynst mjög vel á leiðinni. „Þó að veðrið væri að mestu þokkalegt fengum við leiðindakafla í Látraröstinni, fengum þar suðurfall og suðvestanáttina beint á móti, þannig að við lentum í dálitlum sjógangi. En skipið reyndist mjög vel.“
Hægt er að lesa meira um þetta á Reykhólavefnum og hjá Fiskifréttum.
Myndirnar af Gretti eru eftir Þorgeir Baldursson, ljósmyndara.
Þorgeir Baldursson
GSM 699 4890
Netfang: thorgeirbald@simnet.is
Vefur: www.123.is/thorgeirbald
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar HF., enskt hjáheiti "Thorverk", boðar hér með til aðalfundar félagsins er haldinn verður í fundarsal Þörungaverksmiðunnar á Reykhólum miðvikudaginn 18. maí nk. kl. 1000.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar HF.
Tilkynnt var í lok árshátíðar Reykhólaskóla núna í kvöld um valið á nafni á hinu nýja flutningaskipi Þörungaverksmiðjunnar. Nafnið er Grettir og verðlaunin fyrir tillöguna hlutu systurnar Aðalbjörg og Elínborg Egilsdætur á Mávavatni. Í viðurkenningarskyni fá þær peninga á verðtryggðum bankareikningi. Eins og hér var greint frá efndi Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum til samkeppni um nafn á skipið meðal nemenda Reykhólaskóla.
Hægt er að lesa meira um þetta á vef Reykhólahrepps.
Í dag var haldið skyndihjálparnámskeið fyrir starfsmenn Þörungaverksmiðjunnar þar sem að Hrefna Hugósdóttir hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Vinnuvernd fór yfir þau atriði með starfsmönnum verksmiðjunnar sem einstaklingar verða að hafa í huga þegar um endurlífgun og viðbrögð við slysum eða öðrum bráðavandamálum sem upp kunna að koma á vinnustað og í daglegu lífi. Almenn ánægja var með námskeiðið og með það í huga verður stefnt að því að vera með svipaða eflingu í það minnsta einu sinni á ári.
Þörungaverksmiðjan HF. ásamt starfsmannafélagi sínu bauð starfsmönnum sínum í sitt árlega hópefli sl. helgi við góðar undirtektir þáttakenda. Var hópeflið haldið í undirbúningi fyrir komandi þangvertíð rétt eins og var gert með góðum árangri á síðasta ári. Þangvertíð Þörungaverksmiðjunnar HF. er áætluð að hefjast í byrjun apríl nk. Tilgangur verksmiðjunnar og starfsmannafélagsins með hópeflinu er að þjappa mannskapnum sama til að ná markmiðum sínum fyrir fyrirtækið á þessu ári. Fengum við fyrirtækið Practical er sérhæfir sig í hópefli að aðstoða okkur við undirbúning.
Stigagjöfin var ansi áhugaverð og er aðgengileg hér sem PDF.
Í dag var haldið sjálfstyrkingarnámskeið fyrir starfsmenn Þörungaverksmiðjunnar þar sem að Sverrir Ragnarsson ráðgjafi hjá Door Training fór yfir þau atriði með starfsmönnum verksmiðjunnar hvað einstaklingar geta haft í huga til að ná markmiðum sínum og að sama skapi markmiðum fyrirtækisins. Almenn ánægja var með námskeiðið og með það í huga verður stefnt að því að vera með svipaða eflingu í það minnsta einu sinni á ári.
Nú líður að því að Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum fái nýja flutningaskipið sem mun leysa Karlseyna af hólmi eftir mjög langa og dygga þjónustu. Reiknað er með að nýja skipið geti tvöfaldað öflunargetu verksmiðjunnar. Slippurinn á Akureyri er að ljúka breytingum á skipinu og verður það afhent eftir reynslusiglingar í lok þessa mánaðar. Atli Georg Árnason framkvæmdastjóri hefur efnt til samkeppni um nafn á nýja skipið og falið hana í hendur nemendum Reykhólaskóla. Frestur sem nemendurnir fá til að skila inn tillögum stendur fram á föstudag. Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þann nemanda sem leggur til nafnið sem verður valið.
Dómnefnd skipa, Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri, Júlía Guðjónsdóttir skólastjóri, Þorgeir Samúelsson framleiðslustjóri, Örn Snævar Sveinsson skipstjóri og Atli Georg Árnason framkvæmdastjóri.
Þann 14. febrúar sl. hlotnaðist Þörungaverksmiðjunni HF. sá heiður að vera á lista yfir framúrskarandi fyrirtæki hjá CreditInfo á Íslandi eftir að þau hjá CreditInfo höfðu unnið að ítarlegri greiningu sem sýnir hvaða íslensku fyrirtæki fá bestu einkunn í styrk- og stöðugleikamati félagsins. Af rúmlega 32.000 fyrirtækjum sem skráð eru í Hlutafélagaskrá reyndust 177 fyrirtæki uppfylla þau skilyrði sem CreditInfo setur til að fá viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki byggt á eftirfarandi stöðlum og er Þörungaverksmiðjan HF. eitt þeirra.
Síðustu þrír ársreikningar fyrirtækja voru lagðir til grundvallar og þurftu þau meðal annars að sýna fram á jákvæðan rekstrarhagnað og ársniðurstöðu. Sömuleiðis máttu eignir aldrei vera undir 100 milljónum og eiginfjárhlutfall aldrei minna en 20%. Einnig þurftu fyrirtækin að vera í flokki 1-3 í CIP áhættumati CreditInfo sem að er minna en 1% líkur á vanskilum og fyrirtækið sé virkt skv. skilgreiningu CerditInfo.
Erum við hjá Þörungaverksmiðjunni afar stolt af því að hljóta þessa viðurkenningu og bætist vottun þeirra hjá CreditInfo við okkar lífrænu vottun og viðurkenninguna VÍS sem fyrirmyndarfyrirtæki á sviði forvarna. Undirstrika þessar viðurkenningar og vottanir fagmennskuna sem höfð er að leiðarljósi í rekstri fyrirtækis okkar, sagði Atli Georg Árnason framkvæmdastjóri við móttöku vottunarinnar og viðurkenningarinnar frá CreditInfo.
Nánari upplýsingar um viðurkenninguna má finna á vef CreditInfo.
Samningar tókust sl. desember á milli Þörungaverksmiðjunnar hf. og Slippurinn Akureyri ehf. um að ljúka endurbyggingu og breytingum á nýja skipi Þörungaverksmiðjunnar, Fossá ÞH362, að þeirra sérstöku þörfum þar sem að ekki var hægt að klára verkið hjá Þorgeiri & Ellert á Akranesi eins og vonast hafði verið eftir. Skipið er nú komið til Akureyrar og binda aðilar verkefnisins og aðrir velunnarar miklar vonir við verkið þar sem að því loknu mun skipið verða að hinni nýju Karlsey og leysa hina gömlu af hólmi. Ekki hefur ennþá verið tekin lokaákvörðun um hvað hlutverk fyrirtækið mun finna fyrir gömlu Karlsey þegar þjónustu hennar lýkur.
Nánari upplýsingar um framvindu verksins má finna á heimasíðu Slippsins Akureyri ehf.
Hlynur Stefánsson hefur verið skipaður Viðhaldsformaður Þörungaverksmiðjunnar HF. og mun taka við sem slíkur frá og með 1. okt. Viljum við hjá Þörungaverksmiðjunni HF. óska Hlyni til hamingju með með nýtt hlutverk hjá fyrirtækinu og áframhaldandi velfarnaðar í störfum sínum.
Vegna þeirra breytinga er Þörungaverksmiðjan HF. hefur verið að fara í gegnum í kjölfar eigandaskipta er urðu í ágúst 2008 er ný staða viðhaldsformanns ”SMM“ hér með auglýst til umsóknar.
Viðhaldsformaður mun starfa mjög náið með framleiðslustjóra verksmiðjunnar og vera vera ábyrgur í umboði framleiðslustjóra fyrir eftirfarandi:
Nauðsynlegt er að viðhaldsformaður muni vera þátttakandi í eftirfarandi:
Umsóknarfrestur er til og með 17. september nk. og skal umsókninni fylgja ferilskrá ásamt kynningabréfi þar sem að umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Umsóknin skal afhent framkvæmdastjóra á skrifstofu hans.
Bjarni Þór Bjarnason löndunarformaður Þörungaverksmiðjunnar HF. hefur ákveðið að hætta störfum hjá verksmiðjunni til að leita nýrra tækifæra og ævintýra í Austur-Landeyjum.
Viljum við hjá Þörungaverksmiðjunni HF. með þessu þakka Bjarna vel unnin störf og óska honum alls hins besta í framtíðinni.
Þorgeir Már Samúelsson hefur verið skipaður Framleiðslustjóri Þörungaverksmiðjunnar HF. og mun taka við sem slíkur frá og með 1. sept nk. Viljum við hjá Þörungaverksmiðjunni HF. óska Þorgeiri til hamingju með með nýtt hlutverk hjá fyrirtækinu og áframhaldandi velfarnaðar í störfum sínum.
Vegna þeirra breytinga er Þörungaverksmiðjan HF. hefur verið að fara í gegnum í kjölfar eigandaskipta er urðu í ágúst 2008 er ný staða framleiðslustjórnanda hér með auglýst til umsóknar.
Framleiðslustjórnandi mun vera ábyrgur fyrir eftirfarandi:
Umsóknarfrestur er til og með 18. júní nk. og skal umsókninni fylgja ferilskrá ásamt kynningabréfi þar sem að umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda í starfið. Umsóknin skal afhent framkvæmdastjóra á skrifstofu hans.
Þörungaverskmiðjan fékk að njóta þess heiðurs að taka þátt í að gefa nemanda Fjölbrautarskóla Vesturlands verðlaun við útskrift stúdenta vorið 2010. Nemandinn heitir Líf Lárusdóttir og útskrifaðist hún af náttúrufræðibraut. Verðlaunin voru hin frábæra "Stiklað á stóru um næstum allt" eftir Bill Bryson og voru veitt fyrir ágætan námsárangur í líffræði.
Við lok skólaársins 2009 - 2010 fékk Ásbjörn Egilsson, einnig stúdent af náttúrufræðibraut, verðlaun úr sjóði Guðmundar P. Bjarnasonar, hvers tilgangur er að hvetja til áhuga og iðni við nám. Ásbjörn lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut í desember 2009. Þar náði hann framúrskarandi námsárangri og er því vel að þessum verðlaunum komin
Miðvikudaginn 26. maí 2010 kl. 11:00 voru opnuð tilboð í verkið "Reykhólahöfn, skjólgarður". Tilboð voru opnuð samtímis á skrifstofu Siglingastofnunar Íslands, Vesturvör 2 Kópavogi og á skrifstofu Reykhólahrepps.
Við hjá Þörungaverksmiðjunni erum einstaklega ánægð með framvindu þessa þar sem að skjólgarður þessi er nauðsynlegur í kjölfar komu nýs og stærra skips okkar sem nú er í endurbyggingu hjá Þ&E á Akranesi, sér í lagi þegar tekið er tillit til hinna sterku norðan og norðaustan vindátta sem eiga það til að vera mjög ríkjandi hér á svæðinu.
Vegna breytinga þeirra er Þörungaverksmiðjan HF. er að ganga í gegnum hefur staða Verksmiðjustjóra verið lögð niður og með það í huga hefur Guðmundur Sigvaldason hætt störum hjá fyrirtækinu frá og með deginum í dag.
Viljum við hjá Þörungaverksmiðjunni HF. með þessu þakka Guðmundi fyrir þann tíma er hann starfaði hjá fyrirtækinu og óska honum alls hins besta í framtíðinni.
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar HF., enskt hjáheiti „Thorverk“, boðar hér með til aðalfundar félagsins er haldinn verður í fundarsal Þörungaverksmiðunnar á Reykhólum miðvikudaginn 26. maí nk. kl. 1600.
Dagskrá fundarins verður eftirfarandi:
- Hefðbundin aðalfundarstörf í samræmi við 16. grein samþykkta félagsins
- Önnur mál sem löglega eru upp borin.
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar HF.
Vegna breytinga hjá Þörungaverksmiðjunni HF. hefur Guðrún Guðmundsdóttir hætt sem skrifstofustjóri hjá fyrirtækinu, vegna þessa hefur Borghildur Sigurðardóttir og hennar teymi hjá Fjárstoð ehf. tekið yfir ábyrgð starfa skrifstofustjóra verksmiðjunnar.
Best er að hafa samband við Fjárstoð á eftirfarandi hátt:
Fjárstoð ehf
Smáratorgi 3
201 Kópavogi
Sími: 556 6000
Fax: 556 6001
Tölvupóstur: fjarstod@fjarstod.is
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu eða hjá eftirtöldum:
Borghildur Sigurðardóttir
Netfang: borghildur@fjarstod.is
Sími: 556 6000
GSM: 898 4686
Viljum við hjá Þörungaverksmiðjunni HF. með þessu þakka Guðrúnu fyrir þann tíma er hún starfaði hjá fyrirtækinu og óska henni alls hins besta í framtíðinni.
Þörungaverksmiðjan HF. ásamt starfsmannafélagi sínu bauð starfsmönnum sínum í sitt árlega hópefli sl. helgi við góðar undirtektir þáttakenda. Var hópeflið haldið í undirbúningi fyrir komandi þangvertíð rétt eins og var gert með góðum árangri á síðasta ári. Þangvertíð Þörungaverksmiðjunnar HF. hefur nú formlega hafist og er fyrsti aflinn nú þegar kominn á land. Tilgangur verksmiðjunnar og starfsmannafélagsins með hópeflinu er að þjappa mannskapnum sama til að ná markmiðum sínum fyrir fyrirtækið á þessu ári. Fengum við fyrirtækið Practical er sérhæfir sig í hópefli að aðstoða okkur við undirbúning.
Þörungaverksmiðjan hf. var þess heiðurs að njótandi að fá að taka þátt í að styrkja lið Fjölbrautaskóla Vesturlands í söngkeppni starfsbrauta í framhaldsskólum á Íslandi þetta árið.
Í fjárlögum frá Ríkisstjórn Íslands fyrir árið 2010 er sérstaklega gert ráð fyrir verulegu fjármagni til hafnarframkvæmda við Reykhólahöfn, er fjármagn þetta sértaklega eyrnamerkt brimvarnargarði til að verja Reykhólahöfn fyrir hinni sterku norðan og norðaustan vindátt sem á það til að vera mjög ríkjandi hér á svæðinu. Við hjá Þörungaverksmiðjunni erum mjög ánægð með framvindu þessa þar sem að brimvarnargarður þessi er nauðsynlegur í kjölfar komu nýs og stærra skips okkar sem nú er í endurbyggingu hjá Þ&E á Akranesi. Siglingamálastofnun Íslands sem að fer með málið er að vonast eftir því að verkið verði komið í útboðsferli í apríl nk.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur sjávargróður og afurðir hans hljóta vottun sem lífræn framleiðsla. Vottun Þörungaverksmiðjunnar er staðfesting þess að fyrirtækið uppfylli ströngustu alþjóðlegar kröfur um sjálfbæra nýtingu auðlinda, aðgreiningu hráefna, rekjanleika afurða og varnir gegn mengun á öllum stigum framleðslunnar.
Bill Wolf, June 1999
[Þörungaverksmiðjan] hefur lengi verið þekkt sem sérstaklega mikilvægur framleiðandi á hágæða mjöli.
Richard Searle, July 2004
Hönnun: Hringbrot