Saga Þörungaverksmiðjunnar
Forsaga og eigendur
Þörungaverksmiðjan hf. var stofnuð á Reykhólum árið 1986. Fyrirtækið framleiðir mjöl úr klóþangi (Ascophyllum nodosum) og hrossaþara (Laminaria digitata) sem sótt er til vinnslu víðs vegar úr Breiðafirði. Undanfari Þörungaverksmiðjunnar hf. var Þörungavinnslan hf. sem hóf starfsemi árið 1975.
Núverandi eigendur Þörungaverksmiðjunnar h.f. eru bandaríska fyrirtækið FMC Corporation sem á 71,6% hlutafjár í verksmiðjunni. Auk FMC Corporation á Byggðastofnun 27,7% hlut í Þörungaverksmiðjunni, aðrir hluthafar eru um 70. FMC Corporation keypti í ágúst 2008 hlutabréf bandaríska fyrirtækisins ISP í Þörungaverksmiðjunni hf. Þörungaverksmiðjan hf. starfar náið með FMC Corporation í Skotlandi og Noregi, FMC Corporation er jafnframt stærsti kaupandi á afurðum verksmiðjunnar.
Lífrænt vottuð framleiðsla
Þörungaverksmiðjan hf. tók formlega á móti vottun þann 14. júní árið 1999 þess efnis að framleiðsla verksmiðjunnar sé lífrænt vottuð. Það er Vottunarstofan Tún ehf. sem vottar framleiðslu Þörungaverksmiðjunnar hf. Vottunarstofan Tún er jafnframt eftirlitsaðili fyrir bandarísku vottunarstofuna Quality Assurance International (QAI) sem jafnframt hefur heimilað Þörungaverksmiðjunni að nota vörumerki sitt.
Verktakar og vaktir
Stöðugildi hjá Þörungaverksmiðjunni h.f. er 32 starf. Unnið er á þrískiptum vöktum allan sólarhringinn og auk starfa við löndun og pokun er rekið viðgerðaverkstæði, netaverkstæði, skip og skrifstofa. Verktakar sjá um þangslátt á sumrin.
Afurðirnar
Klóþang er skorið við sjávarmál og er notast við sérstaka slátturpramma sem eru í eigu verksmiðjunnar. Þangslátturvertíð hefst á vorin og stendur fram á haust, slátturinn er háður tíðarfari og sjávarföllum. Á vetrarmánuðum á sér stað framleiðsla á mjöli úr hrossaþara og er hann tekin með þar til gerðum plóg á skipi verksmiðjunnar, m/b Karlsey.
Meira en 95% af framleiðslunni er til útflutnings og helstu markaðir eru Skotland, Bandaríkin, Bretland, Noregur, Holland, Þýskaland, Frakkland, Japan og Taiwan. Mjölið sem unnið er hjá Þörungaverksmiðjunni HF. hefur mjög svo góða bindieiginleika vegna mikils innihalds svokallaðra gúmmíefna í mjölinu, þ.m.t. Alginat, sem er fjölsykra er hefur einstaklega mikla bindieiginleika. Mjölið er framleitt að miklu fyrir fyrirtæki er áframvinna efnið enn frekar til að einangra þessi svokölluðu gúmmíefni til áfamvinnslu í allskyns iðnað, s.s. matvæla-, snyrtivöru-, lyfja-, textiliðnað ásamt margskonar öðrum iðnaði.
