Hráefni
Klóþang (Ascophyllum nodosum) vex á milli flóðs og fjöru og er algeng tegund við Norður Atlantshaf. Klóþangið vex á stórum steinum, klettum og klöppum og getur orðið 1,5 m. hátt. Tegundin þrífst best þar sem hún kemst í tæri við loft þegar lágstreymt er, og á frekar opnum eða skjólgóðum svæðum.
Klóþang er algengasta tegund sjávargróðurs við strendur Íslands. Þangið er mjög viðkvæmt fyrir mengun og getur gefið vísbendingar um mengun. Aðstæður við Breiðafjörð eru óvíða betri, þar sem mikill munur er milli flóðs og fjöru, mikil ferskvatnsblöndun og strjálbýlt.
Hrossaþari (Laminaria digitata) er einn af stærstu þörungum sem vaxa við strendur Evrópu og er hann algengur í Norður Atlantshafi. Fullvaxnar plöntur geta orðið rúmlega 2 m. Hrossaþari samanstendur af sveigjanlegum stilk og fingruðu blaði. Vaxtarsvæði þarans er á grjóti og klapparbotni, frá fjöruborði og niður á 20 metra dýpi.
