Leiðbeiningar
Garðamjöl
Á grasflöt, beð, tré og limgerði 5 kg / 100 m2.
Í jarðvegsblöndur: 1 kg. / 50 l.
Í safnhaug: 1 kg. / 50 l.
Í matjurtabeð: 5 kg. / 25 m2.
Við útplöntun trjáa og runna: 20 gr. / plöntu.
Við útplöntun á fjölærum plöntum: 10 gr. / plöntu.
Ákjósanlegast er að dreifa mjöli á garðfleti að vori og aftur að hausti. Það sem er dreift að hausti til er þá uppleyst í jarðveginum og tilbúið til upptöku þegar gróðurinn þarfnast næringaefnana um vorið. Því sem er dreift um vor nýtist yfir sumartíman meðan á vaxtartíma stendur.
Við ræktun matjurta og útplöntun planta blandið garðamjöli í efsta lag jarðvegs.
Fóðurbætir
Mjólkurkýr og nautgripir: 50\-100 gr.
Kvígur og kálfar: 30\-60 gr.
Hestar, kindur og geitur: 15 gr.
Fiðurfé: 1\-2% af fæðuskammti.
Stórir hundar: 1 tsk.
Litlir hundar: 1/2 tsk.
Kettir: 1/4 tsk.
Ekki er mælt með þangmjöli fyrir kanínur.
Almennt gildir að gefa 1\-2% af fæðuskammti. Gefið nær 2% ef dýr eru undir álagi vegna ferða, veikinda eða burðar, þó er hættulaust að gefa þangmjöl í öðrum hlutföllum.
Um þangmjöl
Eiginleikar þangmjöls eru margir og eru því notkunarmöguleikar þess margskonar. Upphaflega nýttu menn þang sem fóður og áburð og er sú nýting þangsins mest í dag. Í takt við aukna þekkingu, tækni og rannsóknir hefur notagildi þangs aukist. Einnig gerir þróun í vinnslutækni það hagkvæmt að vinna ýmis efnasambönd úr þangmjöli.
Fóður
Sem fóður er fyrst og fremst næringagildi þangsins sem er ásóknarvert. Þang inniheldur öll stein\- og snefilefni sem uppleyst er í sjónum og nauðsynleg eru lífverum til vaxtar og viðhalds. Auk þess inniheldur þang önnur lífsnauðsynleg efnasambönd, s.s. vítamín, aminósýrur, prótein og önnur lífvirk efnasambönd.
Kostir þangmjöls sem fóðurbætir eru margir og mismunandi eftir því hvaða dýrum það er gefið. Almennt má segja að þangmjöl tryggi húsdýrum og gæludýrum öll nauðsynleg næringarefni og þannig stuðli að heilbrigðum vexti þeirra og viðhaldi.
Áburður
Það á sama við um þang sem áburð og fóður, efnasamsetning þangsins sem er eftirsóknarverð. Lífræn steinefni, snefilefni og vaxtarhvetjandi efnasambönd í þangmjöli bæta vaxtarskilyrði plantna.
Helstu kostir þangmjöls sem áburðs eru eftirfarandi:
- Bætir frjósemi jarðvegs, rótarvöxt og aldinmyndun.
- Styrkir ónæmiskerfi plantna gegn sjúkdómum og snýkjudýrum.
- Eykur bragðgæði og geymsluþol garðávaxta.
- Skerpir liti blóma, laufblaða og grasflatar.
Fjölsykrur
Alginat er fjölsykra sem hefur mikla bindieiginleika. Alginat innihald í þangi er hátt og fer stór hluti þangframleiðslu Þörungaverksmiðjunnar hf. til alginatframleiðslu. Alginat er m.a. notað í matvælum, snyrtivörum, lyfjaiðnaði, textiliðnaði og markskonar öðrum iðnaði. Eiginleikar alginats eru margskonar sem vítt notkunarsvið ber vitni um.
