Vinnsluferli
Vinnsluferill Þörungaverksmiðjunnar er einstakur vegna aðgengis að fersku hráefni og mildrar þurrkunnaraðferðar. Hráefnið er sótt á Breiðafjörðinn þar sem skilyrði fyrir vöxt þörunga eru óvíða betri. Til þurrkunar er notað loft sem er hitað með rúmlega 100C gráða heitu vatni úr borholum við Reykhóla.
Klóþangs (Ascophyllum nodosum) er aflað með þangslátturvélum milli stórstreyms fjöru og flóðs. Hrossaþara er aflað með kló sem öflunarskip Þörungaverksmiðjunnar m/b Karley dregur á eftir sér. Þanginu og þaranum er landað daglega til vinnslunnar.
Þurrkunaraðferðin er mild, hráefnið er þurrkað við lágt hitastig sem tryggir varðveislu virkra efna. Eins verða engar leifar af bruna í afurðinni eins og oft vill vera í þurrkurum sem nota olíu eða kol. Þurrktíminn er breytilegur eftirr veðri og tegund hráefnis, en að öllu jöfnu er þurrktíminn 2\-3 klst. Eftir þurrkun er mjölið malað, sigtað og því pakkað.
Þörungaverksmiðjan framleiðir lífrænt vottað hágæða þörungamjöl sem metið er að miklum verðleikum um allan heim.
