Fréttir

Enn um umhverfisvernd

1 af 2

Þörungaverksmiðjan vill lækka kolefnispor sitt og plastnotkun. Plastfilma sem notuð er til að styðja poka á brettum til útflutnings hefur verið nauðsynleg til að verja vöruna gegn hnjaski. Nýlega var ákveðið að byrja að nota pökkunarfilmu sem er þynnri, sterkari og mun brotna niður eins og annað lífrænt efni. Fyrst þessi filma frá umbúðasölunni Silfrabergi er sterkari þá er hægt að nota mun minna. Gert ráð fyrir að nota árlega 48% minna af filmu en verið hefur á útflutning til Evrópu og Bandaríkjanna. Það rotnar við myglun alveg eins og fjölsykrur plantna og á að breytast í koltvísýring og vatn. Héðan í frá verða viðskiptavinirnir minntir á að flokka þetta plast með lífrænu efni til moltunar eða senda það til endurvinnslu.

Leggjum okkur fram, leggjum náttúrunni lið.