Aðalfundur Þörungaverksmiðjunnar hf., sem haldinn verður 2. júní 2026, hefur verið boðaður með svohljóðandi bréfi sem sent hefur verið á hluthafa:
Ágæti hluthafi.
Stjórn Þörungaverksmiðjunnar hf. boðar til aðalfundar í félaginu þriðjudaginn 2. júní 2026, kl. 13:00, að Karlsey, Reykhólum, 380 Reykhólahreppi. Á dagskrá eru almenn aðalfundarstörf skv. 1. mgr. 16. gr. samþykkta félagsins sem er svohljóðandi:
Á aðalfundi skulu tekin fyrir þessi mál:
1) Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess sl. starfsár.
2) Efnahags- og rekstrarreikningur fyrir liðið reikningsár og skýrsla endurskoðenda skal lögð fram til staðfestingar.
3) Kosning stjórnar og varastjórnar.
4) Kosning endurskoðenda.
5) Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og endurskoðenda.
6) Tekin ákvörðun um hvernig skuli fara með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
7) Önnur mál sem löglega eru upp borin.“
Reykhólum 21. maí 2026.
Fyrir hönd stjórnar Þörungaverksmiðjunnar.
Hlynur Einarsson